|
|
20.01.2006 18:14:51 / Ágúst Bjarni
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin(n) af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en
ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
»
03.12.2005 15:59:48 / Ágúst Bjarni
Íslandsmótið innanhús í morgun, mér tókst að spila í 6 mínútur,
lenti í því að einhver fagmaður úr Aftureldingu tók sig til og
lenti svona helvíti illa á hægri hendinni eftir að ég hafi varið
frá honum. Betra að taka það
fram. Nettur. Þurfti að fara útaf enda handleggurinn farinn
að bólgna mikið. Var sendur uppá slysó og þar var mér sagt að ég
þyrfti ekki myndartöku þar sem ég gat hreyft handlegginn. Gott mál.
Ætla að mæta í úrslitin á morgun.
Annars er þessi próf tíma á enda kominn. Seinustu tvö á
þriðjudaginn og maður ætlar að klára þau með sæmd, annað er rugl.
Fer svo mjög líklega beint í vinnu, Árni Freyr kominn með vinnu í
Ölgerðinni þannig við verðum mikið saman um jólin. Mjög mikilvægt í
þessari vinnu að hafa einhvern nettan sér við hlið. Annars er þetta
frekar glatað.
Leikur með 2. flokki í gær á móti Víking. Unnum 2-1 og okkur
vantaði 2 sterka leikmenn, þannig þetta stefnir vonandi allt í
rétta átt hjá okkur sem er gott.
Ég er búinn að finna tvífara Peter Crouch á Íslandi og það er
enginn annar en Andri Júlíusson, skagamaður. Heppinn.
»
01.12.2005 17:43:10 / Ágúst Bjarni
Íslenska:
Ágætlega
Enska: Ekkert spes, frekar illa
Félagsfræði: Ætla að rústa
því, enda frekar easy
Franska: Ætla að ná því
vel, á að vera frekar létt
»
30.11.2005 02:04:57 / Ágúst Bjarni
Já takk fyrir. Ég er í fantaformi, tók 400 metra sprettinn með
bolta á 1 mín og 35 sek. Vel gert. Mætti á æfingu og sá strax eftir
því að hafa ekki mætt fyrr, félagar mínir í FH að spila á móti
Fylki. Sá ekki mikið, en það sem ég sá var gott hjá þeim. Eru
sterkir.
Nú er klukkan 2:00 og íslenskupróf á morgun. Ef ég næ þessu prófi
þá er það allt Áslaugu og Bellu að þakka, þær eru nettar. Búnar að
bjarga mér algjörlega.
Enskan á fimmtudaginn, þýðir ekkert annað en að fara með
morgundaginn í það. Læra og læra, vonandi skilar það manni
einhverju.
Próflok 6. des, þá kemur kærkomið jólafrí. Verð í fríi í sirka viku
áður en ég byrja að vinna. Ætla taka enn eina jólatörnina hjá
Egils. Djöfull gæfi ég mikið fyrir að eiga pening og þurfa ekki að
vinna. Afhverju kemur ekki allt upp í hendurnar á manni? Ég vil
það. Nenni engan veginn að vera hafa fyrir hlutunum.
En jæja smá lörn í viðbót og svo beint í háttinn. Vakna snemma í
fyrramálið.
Góða nótt kæru landsmenn og vegni ykkur vel í prófunum sem nú eru
að detta inn. Þeir sem ég þekki ekkert og eru eitthvað að ruglast á
þessa síðu, þá bendi ég þeim á að ég óska þeim ekki velgengi í
prófunum því ég þekki þá ekkert. Vona að þeir falli. Djók.
Djókari...
»
27.11.2005 16:54:27 / Ágúst Bjarni
Að hlusta á
jólalög er eitthvað sem allir ættu að gera. Það er ekki asnalegt
og glatað. Það er kúl. Þér líður vel. Ég fæ svona litlu barna
filing ( reyndar er ég lítill ) og það er gaman. Jólalögin
hreinsa líkamann frá öllu hversdagsleikanum, öllu þeim áhyggjum
sem honum fylgja Ég
er reyndar mjög rólegur í tíðinni og hef litlar áhyggjur af því
sem er að gerast í kringum mig. Það er allt eitthvað svo gott í
jólalögunum og það fær mann til að líða vel, mér líður vel.
Nú er systir mín að spila á blokkflautuna sína inn í stofu afþví
það er verið að róta eitthvað til í herberginu hennar. Ég er smá
pirraður á því, samt er ég að hlusta á jólalög og ef ég nenni með
Helga Bjöss er einmitt á fóninum núna. Mjög gott lag, en falskur
flautuhljómurinn er að skemma lagið fyrir mér. Systir mín er
reyndar alveg ágæt á blokkflautuna, en þar sem ég þekki ekkert
þetta hljóðfæri frekar en eitthvað annað þá finnst mér allt sem hún
gerir vera falskt. Gaman af því.
Prófin að nálgast og ég á að vera að læra núna. Ég nenni því
ekki, og kem eflaust ekkert til að nenna því í dag/kvöld. Ég er
alveg vel smeikur fyrir tvö próf, ensku og íslensku en ef allt fer
á vesta veg í þeim ætti það svosem ekkert að koma eitthvað niður á
mér því ég næ öllu hinu vel. Ég er búinn að bregðast sjálfum mér á
þessari önn því ég lofaði mér því að ég myndi læra og vera geðveikt
duglegur, en það hefur farið eitthvað annað. Var að velja mér fög
fyrir næstu önn og það er óhætt að ég hafi hlaðið á mig einingum
fyrir hana, ég GÆS standa mig.
Ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu var tímaleysi, þurfti að
skila helling af verkefnum í skólanum og svo eru æfingar byrjaðar á
fullu. Því miður þá sé ég ekki fram á það að ég muni hafa meiri
tíma á næstunni en ætla þó að reyna að skella inn einni og einni
færslu svona við tækifæri.
Take care people
»
04.11.2005 11:31:36 / Ágúst Bjarni
Jæja, þá er kominn tími á eina góða færslu. Margt hefur verið að
gerast í lífinu, og ég elska lífið. Mánuður eftir af skólanum og þá
taka við 6 próf. Ég held að ég gæti verið tæpur á að ná ensku og
kannski íslensku, hef ekki verið að gera neitt svaka mót í þessum
fögum. Ég verð kominn í jólafrí 6. des, fílaða. Fótboltinn er að
komast í gang núna, byrjar frekar hægt en maður verður þá bara að
leggja meira á sig á æfingum og æfa svo aukalega. Ég hef ekki verið
eins duglegur við það og ég ætlaði mér að vera. En það er bara að
byrja núna...
Ástæðan fyrir því að ég bloggað lítið er sú að tölvan heima er í
fokki og er búinn að gera mig þunglyndan. Ég er nefnilega
tölvufíkill og á erfitt með að vera frá tölvu í meira en einn dag.
Þá verð ég ónýtur.
Valur fór út til London á föstudaginn, yfir helgina. Fóru á leik
Chelsea og Blackburn. Ég fór ekki með, sé mjög eftir því en ástæðan
fyrir því var algjört peningaleysi. Svekkjó
Tveir leikir búnir hjá 2. flokki. Spiluðum fyrst við Stjörnuna
og tókum þá easy 3-1 og svo var næsti leikur frekar vafasamur 6-2
tap fyrir félögum mínum og vinum í FH. Sumarið hjá okkur á eftir að
vera mjög erfitt. Við erum ekki með neitt gríðarlega sterkt lið en
sem betur fer er verið að vinna í því að styrkja það.
Tími
»
01.11.2005 09:55:31 / Ágúst Bjarni
Jæja, hver er heimurinn eiginlega að fara? Hvar endar
þetta?
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=130022
Allavega, netið er búið að vera í sósu og ég hef ekkert komist í
það að blogga. Það mun detta inn feit færsla hér á næstu sekúndum,
mínútum, klukkutímum, sólahringum, næsta ári, næstu árum, næstu
öld, næstu öldum...
»
20.10.2005 18:45:10 / Ágúst Bjarni
Nú hefur risi bókmenntanna verið endurvakinn og
mun hann nú rita hér pistil sem ætti heima fyrir augum hins
útvalda, eða allavega einhverjum mjööög heitum.En mun þess í
stað einungis koma fyrir augum örfárra lesenda einnar síðu sem
telja, ef guð leyfir, tugum.Þannig mætti segja að þessi orð
mín væri perlur fyrir svín, en ég geng ekki svo langt, þó rétt
væri. En Gústi minn, ég verð að viðurkenna að þessi pistill
verður ekki feitari, þéttari, heitari, mellufærari, hardcore,
eða eitthvað af þeim orðum sem tákna gæði, fremur en hinir.
Aðeins mínir auðmjúku hugrenningar um
hversdagsleikann.
Nú er ég enn mjög snortinn af fyrr og títtnefndri ljóðabók eftir
Tómas Guðmundsson. Ekki halda að ég sé þessi týpa sem slekkur á
sjónvarpinu klukkan 9, leggst aftur með Gymnopedie No.1, eftir
Satie í eyrunum, sem ég reyndar mæli með, og taki upp góða ljóðabók
og gluggi í til að auðga hugann. Heldur er þetta enn eitt
íslenskuverkefnið sem maður þarf að taka sér fyrir hendur. Þetta
hefur hinsvegar verið sem heilagt vatn úr skítugum koparbikar,
margt lítur betur út en virðist í fyrstu, og var svo með
ljóðaverkefnið. Já, ég segi mig snortinn, en núna er ástin mér ekki
jafn hugleikinn og í síðasta pistli, né hin aumkunarverða tilvist
mannsins sem um ég talað gat, í þar síðasta pistli. Nei, ég hef
tekið nokkur skref niður af hinum háfleyga stalli sem ég á til að
setjast á þar sem ég virði fyrir mér veröld okkar í víðáttunni, við
sjóndeildarhring alheimsins. Ég hef ekki bara tekið skref niðrá við
heldur einnig að okkur heim. Hef ég nú velt fyrir mér hversu mikið
við höfum fjarlægst rótum okkar, þróað nokkurs konar nýja náttúru.
Steinsteypa og bláköld, litlaus háhýsi eru okkur nær hjarta og ofar
í huga en dulinn fífill í grænni hlíð eða ljúfur niður
lækjar. Þó ég sé eitt það mesta(versta?)
borgarbarn sem fundist gæti í þessari smáborg okkar, þá finnst mér
miður hvernig þróunin hefur verið, og myndi ég gefa mikið til að fá
að upplifa sveitasæluna. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að það er
ekki algott lífið í sveitinni og er þetta hluti af "grasið er
grænna hinumeginn" tilhneigingu mannsins, en þrátt fyrir að ég sjái
minn sálarinnar hnút sem fleiri menn þjást af, vil ég komast frá
öllu þysinu og kaosinu sem einkennir heim okkar. Við byrgjum okkur
upp af allskonar hlutum sem við höfum talið okkur trú að sé
lífsnauðsynlegt til að vera maður með mönnum, svo skemmtilega vill
til að ég á líklega öll þau tæki sem upp gæti talið. Hræsnin bankar
víst ekki á undan sér. Fátt þurfum við þó til að upplifa gleðina,
aðeins okkur sjálf og náttúruna. Hvað er betra en áhyggjulaus
friðurinn, afskipaleysi háttsettari manna sem eru með puttana í
öllum okkar málum og aðeins þú og náttúran eins og vinir sem hafa
þekkst frá blautu barnsbeini. Þarft ekki orð til að hún viti hvað
þú hugsar og öfugt, þið eruð bara þarna, og ykkur líður vel. Þannig
á lífið að vera.
Annars er fátt annað sem hefur borist upp í bát minn svo upp gæti
talist. Aðrar vangaveltur mínar jaðra við geðveilumörkin og myndi
án vafa særa blygðunarkennd manna sem um munaði. hátíðlegra verður
þetta ekki að sinni Gústi minn, ég biðst miskunnar fyrir reiðinnar
hendi og vona að dagur hefndar þinnar renni ekki upp í bráð. Láttu
reiðina liggja milli hluta.
Lifið heil
Kv. Stefán Þ.
»
17.10.2005 15:06:13 / Ágúst Bjarni
Ég er farinn
að finna vel fyrir þeirri þörf að fara út að spila fótbolta með
strákunum, þar að segja að fara á æfingu. Nú er ég búinn að vera
í fríi síðan föstudaginn 23. September og það er kominn 17.
október. Þetta eru búnar að vera góðar 3 vikur, enginn fótbolti,
bara skóli og tjill. Nú er ég hinsvegar kominn með mikla löngun
í það að fara í fótbolta og það mun gerast á morgun, ég ætla að
fara á æfingu og taka vel á því. Ég ætla að vera extra duglegur
að æfa í vetur og svo sjá hverju það skilar mér, vonandi
einhverju góðu.
Ég leigði mér spólu í gær, Italian job. Mynd sem ég gef hiklaust
4 stjörnur af 5. Mér finnst hún mjög töff.
Það er mjög mikið af einhverju drasli sem er að veltast um í
kollinum á mér þessa dagana og eiginlega of mikið. Ég er of mikið
að pæla eitthvað.
Ég er samt búinn að komast að því núna síðustu daga að ég er
alveg geðveikur í skapinu. Nánast. Er það eðlilegt? Ég er með mjög
stuttan kveikiþráð og það má lítið útaf bregða svo ég hreinlega
missi mig ekki og stundum fer það algjörlega á vitlausa aðila eins
og mömmu eða litlu systir mína. Ég veit ekki hversu oft ég hef
orðið pirraður útí þær útaf einhverjum smáhlutum sem skipta litlu
sem engu máli. Ég ætla rétt að vona að þetta fari að eldast af
manni og maður fari eitthvað að þroskast. Annars held ég að ég
kenni fótboltanum um þetta skap, keppnisskapið. Ég ætla héðan í frá
að hugsa mig tvisvar um áður en ég æsi mig aftur við einhverja í
fjölskyldunni, því það er jú hún sem skiptir mann mestu máli.
Ég skoða mörg blogg og ég á minn daglega blogg hring eins og
margir. Ég lendi stundum á síðum sem ég veit ekkert hverjir eiga.
Það er samt gaman. Skoða líka mikið af myndum á síðunum og ég þoli
ekki þegar ég ætla að skoða myndir og þær eru á photos.heremy. Það
er ekki að virka hjá mér, veit ekki afhverju, bara opnast ekki. En
já, ég skoða mjög oft síðu hjá strák sem heitir Haddi og tók þátt í
Herra Ísland. Hann er já…skoðið þetta (www.blog.central.is/haddi84). Kannski ágætis strákur
en hann lítur ekki vel út, þá meina ég ekki í útliti heldur persónu
ef eitthvað er að marka þetta blogg hjá honum.
This is my life,
its not what it was before.
All these feelings i've shared
and these are my dreams
that i'd never lived before.
»
16.10.2005 15:46:20 / Ágúst Bjarni
Ég hef nú lítið að segja, annað en það að ég er ekki frá því að ég
sé veikur, eins leiðinlegt og það nú er. Ég læt það samt ekki
stoppa mig í morgun, fór og spilaði fyrir Flensborg í
framhaldsskólamótinu. Við unnum alla okkar leiki og ég eiginlega
verð að taka það fram að ég setti þrennu í seinasta leiknum. Takk.
Allan þennan tíma var ég að deyja í maganum og beinverkir farnir að
segja vel til sín en nei, ég er fokkings harður. Afmæli hjá Bellu í
gær, það var fínt. Eða bara gaman. Er núna að fara í pizzu hjá
tvíburunum Davíð og Bjarka í boði flensunnar, samt ekki
fuglaflensunnar. Ætla ekki að stoppa lengi þar sem ég ætla að fara
heim og leggjast upp í rúm. Mamma er reyndar að halda uppá afmælið
sitt þannig maður verður að blanda einhverju geði við þetta
blessaða frændfólk mitt, sem ég þekki nú mismikið. Vonandi slepp ég
vel.
Ást og hamingja
»
14.10.2005 14:45:13 / Ágúst Bjarni
Mér stendur
ekki á sama hvað varðar helvítis fuglaflensuna sem gjörsamlega
fyllir alla helstu fréttatíma fyrir utan Baugsmálið sem fer jafn
mikið í taugarnar á mér og Kristín Magnúsdóttir. Það fer líka í
taugarnar á mér þegar Haraldur Briem sem er sóttvarnarlæknir
held ég, er í fréttunum að tala um fuglaflensuna og segir að það
sé ekki spurning hvort heldur hvenær hún komi til landsins og
kannski að við íslendingar eigum ekki nægilega mikið af lyfjum
til þess að geta bólusett alla. Hann segir líka að það séu
miklar líkur á að mikið af fólki hér á landi muni deyja ef hún
komi hingað sem allar líkur benda til að hún muni gera þar sem
hún var að finnast í Tyrklandi og Rúmeníu í gær. Ég neita því
ekki, þar sem ég er mjög svona sjúkdómahræddur að ég er orðinn
alveg vel smeikur og ég veit ekki hvað ég mun gera ef hún kemur
til landsins. Eflaust læsa mig inn í herbergi.
Bekkpressukeppni í hádeginu, Addi sýra vann. Addi nettur.
Ég er ekki sáttur við Bóbó. Hann átti að setja inn pistil hér á
miðvikudaginn en hann ákvað að taka sér viku pásu þannig að ég
treysti á það að það muni koma feitur pakki frá honum í næstu
viku.
Ásgeir og Logi landsliðsþjálfarar eru hættir eða samningur
þeirra var ekki endurnýjaður, fínt. En það fer samt ótrúlega í
taugarnar á mér þegar furðufuglar eins Henry Birgir Gunnarsson
ákveða skíta yfir þá eins og hann gerði í Fréttablaðinu í morgun.
Allt sem Henry hefur gert sem íþróttafréttamaður er asnalegt og
lélegt. Í fyrsta lagi hefur hann ekki hundsvit á fótbolta og í öðru
lagi er hann feitur og með ljótt skegg. En samt sem áður þá var
þetta ekki nógu góður árangur hjá Loga og Ásgeiri. Fer bara í
taugarnar á mér þegar fitubollur eins og hann eru að tjá sig um
eitthvað sem þeir vita ekkert um.
Willum og Jolli orðaðir við stöðuna. Mér lýst vel á það en mér
lýst ekki vel á það að missa Willum sem hefur verið mjög góður
fyrir mig. Lært mikið af honum og hann hefur bætt mig mikið sem
markmann. En nóg um það og þetta er víst staða sem allir þjálfarar
vilja, þannig það væri bara ánægjulegt ef hann fengi hana.
Helgin verður í rólegri kantinum. Ælta ekki að gera neitt í
kvöld. Á morgun verður svo eitthvað tekið á því, en ekkert of
mikið. Sunnudagurinn fer svo bara í lærdóm og hvíld.
Sögur segja að Danni hafi verið fluttur á spítala í gær eftir að
aðeins tveggja lotu bardaga við Gísla Jón, handboltahetju úr
Haukum. Ég vissi það. Aldrei myndi mér detta það í hug að fara að
boxa á móti Gísla. Myndi ekki nenna að rústa honum.
»
11.10.2005 16:59:48 / Ágúst Bjarni
- Bjarni Þór er í byrjunarliði U21 í kvöld á móti Svíum
- Er á miðjunni með Dabba bróður sínum
- Nett
- Til hamingju Baddi
- Nettur
- Gunna Bjarna eflaust frekar sátt
- Vona að ég hitti hana bráðlega
- Hún er skemmtileg
- Damien Rice er
snillingur
- James Blunt er
sætur
- Ég er samt ekki
hommi
- Ég slétti samt á
mér hárið í gær
- Sunna gerði
það
- Afþví hún
fílarða
- Reina er
geggjaður og endalaust svalur
- Jón Ásgeir er
nettur
- Davíð Oddsson er
ekki nettur
- Þetta Baugsmál
fer í taugarnar á mér
- Þó ég sé ekkert
inn í því
- Kastljósið nýja
er gott
- Jónína Ben var
næstum því farin að gráta í þættinum í gær
- Og þá var honum
hætt
- Mér fannst það
asnalegt
- Stöð 2 að skíta
á sig
- Ég held að það
sé gott
- Sunna er kominn
með Enska boltann stöðina
- Samt horfir
enginn á fótbolta í hennar fjölskyldu
- Ég er
ánægður
- Ég man eftir
David Ginola
- Hann var
góður
- Og svo varð hann
lélegur
- Eins og Li Tie
hjá Everton
- Jonathan Stead í
Sundarland
- Er lélegur
- Og hann er í
enska boltanum
- Þá eru allar
hurðir opnar fyrir Björn Inga að komast þangað
- Todmobile er
glatað band
- Andrea Gylfa er
ljót
- Only god knows
why er geggjað lag
- Kid Rock er
fáránlega kúl
- Krissi Helga
vinur minn er óheppinn
- Ekki nett
- Enska er mál
fyrir ljótt fólk eins og Wayne Rooney
- DB ætti að tala
ítölsku
- DB = David
Beckham
- Hún er töff
- Þá meina ég
ítalskan
- Því David
Beckham er ekki hún
- Það halda allir
að ég sé ítali
- Kannski afþví að
ég er svo dökkur
- Íslenski
Bachelor þátturinn er fyndinn
- Leiðinlegur
- Ógeðslegur
- Með ljótum
konum
- Fáránlegum
gaur
- Og með asnalegum
kynni
- Glataður
- Hættur núna
- Ég ætla samt
ekki að enda þetta eins og allir sem gera svona punktafærslu með
því að segja hvað þetta hafi verið asnalegt hjá mér að gera
þetta.
- Afþví mér finnst
þetta var nett og töff
»
10.10.2005 00:41:07 / Ágúst Bjarni
Verð að byrja
á því að hrósa James Blunt. Ég veit að hann var ekki að blossa
upp í gær og platan hans var ekkert að koma út í dag, en þrátt
fyrir það þá verð ég að segja hversu endalaust góð þessi plata
er “Back to Bedlam”. Fyrsta lagið sem ég, eins og kannski
flestir aðrir heyrðu með honum var You’re beautiful. Þegar ég
heyrði það lag first fannst mér það ekkert spes en við frekari
hlustun þá var það eitt af mínum uppáhaldslögum. Það var svo
ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum eða u.þ.b. viku sem ég fékk
þessa plötu lánaða frá kærustunni minni og þá byrjaði að hlusta
á hann að einhverri alvöru og platan hans hefur verið í spilun
hjá mér síðan. Lög eins og Tears and Rain, Wise Man, Goodbye my
lover, Billy, High og svo að sjálfsögðu You’re beautiful, sem
reyndar er orðið dálítið þreytt eftir mikla spilun í útvarpi eru
algjör snilld og get ég varla gert upp á milli þessara laga. Öll
platan er reyndar alveg drullu góð en þetta eru svona lög, þið
vitið, sem maður hlustar mest á. Allavega ég. Það eru ekki
allir, hversu lengi og góðir sem þeir eru sem koma með svona
þétta og góða plötu og þar að auki er þetta hans fyrsta plata.
Hann á eitt annað útgefið lag fyrir utan þessi sem á plötunni
eru og það heitir Sugar-Coated, drullu flott, skil ekki
hversvegna það komst ekki fyrir á þessari skífu. Það eru margir
sem kalla hann Damien Rice wannabe en mér finnst það bara vera
bull, hann er með ótrúlega rödd og hún myndi eflaust ekki pass
við neina aðra týpu af tónlist. Þó svo að ég hafi ekki mikið vit
á tónlistareinkunnarstjörnugjöf þá myndi ég gefa “Back to
Bedlam” fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Vel gert James
Blunt.
Var að ljúka við lestur á Mýrinni. Spennusaga eftir Arnald
Indriðason, og hún gjörsamlega límdi mig við sig kennslustund eftir
kennslustund. Gott mál. Ekki vissi ég að einhver íslendingur gæti
gert svona bók, venjulega er allt sem við gerum eitthvað bölvað
bull sem á sér ekkert stoð í raunveruleikanum, eins og hann er núna
þar að segja. Framleiðsla á mynd eftir þessari bók er hafin og bíð
ég spenntur eftir að sjá útkomuna. Ég ætla þó ekki að gera mér of
miklar vonir því seinast íslenska spennumynd sem ég sá var
Sporlaust og, guð minn almáttugur. Hún var það léleg að Peter
Crouch væri fyrr búinn að skora mark fyrir Liverpool áður en hún
kæmi út á DVD. Ok, lélegur þessi. En Ingvar E. Sigurðsson mun fara
með aðalhlutverk myndarinnar og Baltasar Kormákur leikstýrir. Lýst
vel á þessa blöndu, hlakka mega til.
Djöfull er helgin mín búin að vera róleg. Er ekki búinn að gera
neitt, það erfiðasta er búið að vera þegar ég hef nennt að standa
upp til þess að fá mér að borða. Svo mikil átök hafa verið þessa
helgina. Ég er búinn að komast að því að “djammi” fylgir algjört
tilgangsleysi. Hvað er gaman við það að vera fullur niðrí bæ, hanga
í röð í brjáluðu veðri til þess að komst inná ömurlega skemmtistaði
sem allir eru með nýja diskinn frá Black eyed peas á repeat. Samt
dilla sér allir yfir þessu, þar á meðal ég þegar svo ólíklega vill
til að ég læt mig hafa það að fara í bæinn. Svo þegar maður loks
drullast til þess að labba útaf staðnum þá fljúga mistóm bjórglösin
yfir Laugaveginn þannig að maður má hafa sig allan við að fá ekki
þennan óbjóð í andlitið. Eftir þetta allt tekur svo við tveggja og
hálfs tíma röð eftir leigubíl sem kostar þrjúþúsund kall til
Hafnarfjarðar. Frábært, mega gaman, ýkt ógeðslega flippað og
geggjað nett.
»
06.10.2005 19:38:11 / Ágúst Bjarni
Stefán "gestahöfundur" Þórarinsson mættur í hús.
Blóð sviti og tár hafa fallið til að þóknast banhungruðum
pistlaaðdáendum mínum, hér er svo útkoman.
Þá er maður mættur með sinn annan pistil og mun
sá ef til vill vera í væmnari kantinum. Ástæður þess eru
margvíslegar, en beinast liggur við að kenna Tómasi heitnum
Guðmundssyni, ljóðskáldi og mikilmenni um þessa tilfinningalegu
nánd sem hellist yfir mann á nöprum haustdögum. Er ég reyndi að
skilja hvaðan Tómas kom, eða hvert hann var að fara með ljóðabók
sinni “Við sundin blá” varð mér hugsað til ástarinnar. Ekki kemur
það ýkja á óvart þar sem “Við sundin blá” fjallar um fátt annað en
hina óhefluðu tilfinningu sem ástin er. Hvort sem það er ást á
fráfallandi ættingja, ást á hinum friðsæla firði þar sem vorkvöldum
var eytt með dásemdar augum yfir hvernig einfaldleiki náttúrunnar
veitir manni frið, að ógleymdri auðkenndari ást, ástin á the hoez.
Þá hafði hún alltaf mikil áhrif, jafnvel truflaði daglegt amstur
svo um munaði, hugsanir leituðu alltaf á sama veg , hvað sem maður
reyndi að forðast hana. Maður innilokaðist í sínum eigin huga,
fangi innan sjálfs síns, fjötraður sem skynlaus maður. En hvað með
það, hver er ekki tilbúinn að fórna veraldlegum gæðum fyrir
hamingjuna, og þegar þú lest þetta þá hljómar þetta alveg
sjálfsagt, en í raun og veru myndir þú hugsa þig tvisvar ef ekki
oftar um að gefa fataskápinn þinn fyrir möguleikan á hamingju. Líf
okkar snýst að mestu leiti, ef ekki öllu leiti um okkar eigin
vellíðan, en svo einkennilega virðist, sem að við eigum erfitt með
að vita hvað veitir okkur vellíðan, við teljum okkur trú um að nýja
myndin í bíó muni veita okkur gleði, og er það rétt, en sú gleði er
ekki hin rétta, verulega, hreina gleði, aðeins skammgóður vermir.
Ef ekki nýja ræman í kvikmyndahúsunum, þá nýja fatalínan frá boss
eða Diesel og ef þið eruð artý týpurnar, þá er það nýja gamla
flíkin í spútník, en eins og með myndina er það aðeins veraldlegur
hlutur sem í raun gefur okkur ekkert nema afsökun til að þurfa ekki
að leggja okkur fram svo framlagið verði ekki aðeins dropi í hafi,
heldur allavega bára, jafnvel alda, þótt lítil hún
verði.
Hin hreina hamingja verður
ekki skilgreind hér, og tel ég að enginn geti í raun útskýrt hana
með orðum, en þeir sem næst komast því að skilja hana eru þeir sem
neita öllum veraldlegum gæðum og finna gleðina í sjálfum sér.
Skiljanlega hljómar þetta eins og talað út úr munni hræsnara sem
situr við rándýru tölvuna sína á meðan hann horfir á sjónvarpið og
er það rétt, ég er jafn mikill hræsnari og allir hinir en ég veit
af því og ég hyggst breyta því. En í millitíðinni er ég eins og
allir aðrar í þessum skrítna heimi sem vilja eiga “réttu” fötin, og
vera með “réttu” hárgreiðsluna, bara vegna félagslegs þrýstings
samfélagsins. En mín spurning er sú, hvað á nágranni minn með það
að dæma mig fyrir útlit mitt, af hverju segja ytri gæði eitthvað um
minn innri mann, er einhver svo fullkominn að hann hafi eitthvað
með það að dæma þann næsta.
Svo virðist sem ég segi þetta
aðeins sem kenningu, en í raun er þetta sannað. Heilaarit,
svokallað MRI-scan, var tekið af Búddamunk rétt eftir hugleiðslu
fyrir ekki svo löngu. Kom þá bersýnilega í ljós að þau svæði sem
stjórna gleði, skynsemi og rökhugsun voru mun virkari en hjá hinum
sívinnandi, vestræna glæsikerrueiganda. En það sem hinsvegar
einkenndi seinni týpuna var stress og vanlíðan. Þar sást
einfaldlega að ásókn okkar í meira og meira er ekkert nema
óeftirsóknavert hugarástand. Ég geri mér grein fyrir því að þetta
er í raun ekki hverjum og einum að kenna, einstaklingurinn mótast
auðvitað að samfélaginu sem hann elst upp í, en það er honum að
kenna ef hann reynir ekki af öllum sínum mætti að breytar rétt,
finna hamingjuna og deila henni.
Hættum að reyna að vinna næsta
mann, reynum frekar að samgleðjast og finna okkar farveg á þessum
alltof stutta tíma sem við höfum. Látum ekki tilviljanir ráða okkar
sess í lífinu, búum til okkar eigin örlög.
Lifið Heil
»
03.10.2005 00:24:38 / Ágúst Bjarni
Lag dagsins:
Breathe með Sign
Fullkomnun, fokkin' ossom
»
Síður: 1 2
|
|